Sveinn Óskar fæddist á Selfossi 27. júlí 1968. Foreldar hans eru Eygló Guðmundsdóttir frá Austurhlíð í Biskupstungum í Árnessýslu, nú sveitarfélagið Bláskógarbyggð og Sigurður Óskarsson frá Seljavöllum undir Eyjafjöllum í Rangárvallasýslu. Þau búa nú í Reykjavík en bjuggu áður á Hellu í Rangárvallasýslu.
Sveinn Óskar er fyrrverandi bæjarfulltrúi Miðflokksins í Mosfellsbæ (2018-2022). Sveinn Óskar er í íslenskum stjórnmálum til að hafa áhrif. Atvinnu-, mennta- og velferðarmál ásamt ábyrgri opinberri efnahagsstjórn eru þau mál sem Sveinn Óskar leggur áherslu á. Ráðdeild og sparnaður er mikilvægur öllum samfélögum þar sem ætlunin er að gæta að sjálfbærni. Sveinn brennur fyrir hag barnafólks, öryrkja og aldraða. Húsnæðismál eru í forgrunni ásamt skipulags-, fjár-, heilbrigðis- og menntamálum. Það eiga flestir að geta fjárfest í eigin húsnæði en til að svo geti orðið þarf að hjálpa ungu fólki að eignast sína fyrstu íbúð á viðráðanlegu verði.
Sveinn kallar eftir stuðningi til að gera enn betur.
Félagsstörf
Sveinn Óskar Sigurðsson var frá 2015-2017 talsmaður SAMMOS (áður FGMOS), þ.e. samtaka foreldrafélaga grunnskóla Mosfellsbæjar. Auk þess að hafa starfað að félagsmálum um árabil hefur Sveinn starfað innan Sjálfstæðisflokkins frá unga aldri, formaður Fjölnis FUS í Rangárvallasýslu. Sveinn sat bæði í vara- og aðalstjórn SUS (Sambands ungra sjálfstæðismanna) um árabil fyrir Suðurkjördæmi. Sveinn sat áður fyrr í stjórn Sjálfstæðisfélags Mosfellinga, m.a. sem formaður félagsins. Sveinn hefur átt sæti í umhverfisnefnd Mosfellsbæjar fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Sveinn Óskar var bæði varaforseti og forseti Rótarýklúbbsins Þinghóls í Kópavogi. Sveinn Óskar vinnur að verkefni sem nefnist Járnfólkið og er vitundarvakningarverkefni vegna járnofhleðslu sem er erfðasjúkdómur og getur reynst skæður. Sveinn Óskar hefur ritað fjölda greina í Morgunblaðið í yfir 3 áratugi, ritaði ljóð í Lesbók Morgunblaðsins þegar það ágæta aukablað var gefið út og verið blaðafulltrúi blaðsins um árabil. Sveinn hefur gefið út eina ljóðabók sem kom út árið 1992, þ.e. Tjaldborg tímans. Sveinn hefur ávallt látið til sín taka um margvísleg málefni í gegnum tíðina.
Menntun og stefnumál
Sveinn Óskar er 56 ára, hefur BA gráðu í heimspeki og hagfræði, MBA gráðu, MSc meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja og með kennsluréttindi frá Háskóla Íslands. Helstu áherslur Sveins eru fjölskyldu- og húsnæðismál, skólamál, málefni aldraða og öryrkja sem og fjármál og ráðdeild.
Sveinn leggur áherslu á að tryggja beri hagsmuni barnafólks, húsnæðismál ungs fólks og leggja höfuðáherslu á fjármál aldraða sem tryggja á að allir sem komnir eru á efri ár geti haldið reisn sinni og nýtt starfskrafta sína og elju án þess að trygginabætur og lífeyrir skerðist.
Stuðla ber að því að tryggja stöðugleika í efnahagsmálum og vill Sveinn Óskar sjá kerfisbreytingar í lánamálum sem stuðli að því að vaxtastig í landinu lækki til langframa. Byggja þarf upp tryggar stoðir til að taka við auknum ferðamönnum til landsins og stuðla að því að skatttekur þeirrar greinar berist í innviði á Íslandi.
Sveinn Óskar leggur áherslu á að nýta einkaframtakið til að takast á við biðraðavanda víða í samfélaginu, efla heilbrigðisþjónustu í landinu og tryggja umönnun allra landsmanna enda mannréttindi að fólk geti haldið lífsgæðum sínum út alla ævina. Fyrirmynd í fræðunum er Dr. Ólafur heitinn Björnsson prófessor að öðrum ólöstuðum sem leitað er til við lestur og ráðgjöf almennt.
Baráttan fyrir bættum kjörum er því síður en svo eitthvað óeðlilegt og óheilbrigt, eins og stundum er haldið fram, heldur er hún þvert á móti sprottin af eðlilegri sjálfsbjargarhvöt manna.
Dr. Ólafur Björnsson prófessor, Haftastefna Eða Kjarabótastefna, 1953
Þekking og reynsla
Sveinn Óskar þekkir vel til þróunarmála m.a. vegna stöðu sinnar sem ræðismaður þróunarríkis í um tvo áratugi og ráðgjafi á erlendri grundu fyrir opinbera aðila á Íslandi, fyrirtæki, fjármálastofnanir og einstaklinga. Sveinn hefur áhuga á innflytjendamálum sem miðar að því að ganga ekki það langt að fjölga hér fólki að ekki sé hægt að sinna þeim vel sem þegar eru komnir og eiga um sárt að binda. Menntamál eru Sveini hugleikinn enda með kennararéttindi og hefur m.a. kennt við grunnskóla.
Launajafnrétti er sérstakt áhugamál Sveins Óskars enda faðir tveggja stúlkna sem fara brátt út í atvinnulífið eftir menntun sína. Jafnrétti á á öllum sviðum mun ávallt miðast við framlegð, menntun og ábyrgð.
Mikilvægt er að auka virkni þeirra sem hingað koma af erlendum uppruna og gera þeim að ná að aðlagast samfélaginu og læra gott íslenskt tal- og ritmál. Slíkt gerist ekki nema að bestu fagmenn á sviði menntunar á því sviði fá tækifæri til að sinna því sem allra best og þann tíma sem þarf til. Einnig þarf fólk almennt að geta þekkt okkar innviði og tekið samfélagslega ábyrgð varðandi menningu lands og lýðs á Íslandi. Endurskoða ber refsilöggjöf gagnvart fólki vegna fíkniefnabrota og stuðla að því að afglæpavæða fjölda þátta sem varðar fremur meðferðarúrræði og aðstoð í stað refsivistar.
Sveinn Óskar hefur mikla reynslu af húsnæðismálum en hann starfaði sem ráðgjafi í því efni um árabil áður en hann hélt í framhaldsnám á sviði fjármála. Sveinn hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu og hefur rekið fyrirtæki m.a. á sviði fasteignareksturs, fjármála- og ferðaþjónustu og séð um áhættumat og greiningar fyrir fyrirtæki víða um heim.
Fjölskylda
Sveinn Óskar Sigurðsson er búsettur í Mosfellsbæ ásamt eiginkonu sinni Danith Chan, sem er lögfræðingur LLM frá Háskóla Íslands og MBA frá Háskólanum í Reykjavík, og tveimur dætrum þeirra hjóna sem stunda læknisfræðinám erlendis. Foreldrar Sveins eru; Sigurður Óskarsson, fyrrum framkvæmdastjóri Verkalýðsfélags Rangæinga og miðstjórnarmanns um árabil hjá Alþýðusambandi Íslands (ASÍ), varaþingsmanns Sjálfstæðisflokksins fyrir Suðurland og formaður Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokkins auk þess starfaði hann sem löggiltur fasteignasali í yfir áratug á höfuðborgarsvæðinu; Eygló Guðmundsdóttir húsmóðir og starfsmaður Tjaldborgar á Hellu um árabil ásamt því að starfa innan Kvenfélags Oddakirkju. Þau búa nú í Reykjavík.